Hógværðin uppmáluð...

Við erum gullfallegar, ótrúlega fyndnar og hryllilega hógværar...

23.04.2007 13:42:47 / Edda Plögg

TAKK FYRIR HELGINA ÍRIS MÍN!!

oh hvað það var nú gott að sjá skvísuna sína :) Hvort sem það var í saklausri skemmtun í tívolí eða sveittri klúbbastemningu.. eh.. hinum megin við tívolí, þá bara klikkar ALDREI að hitta þig ... sérstaklega ekki þegar þú kemur með nammi hehehehe ;)

Hlakka massa mikið til að sjá þig í sumar   :!:

Lovjú :haha:

eds


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.04.2007 12:35:28 / Íris TJ

Hvað er þetta með Take That

Hvað er málið með Take That a koma aftur ??? Sá eitt myndbandi með þeim áðan...eitthvað lag sem heitir Shine og guð minn góður .... Þeir hafa ekkert breyst .... Varla að þeir hafi elst, en það sem ég skil ekki er hvaða aðdáendur eru það sem fíla þá ennþá???? Ekki segja mér að þær sem voru dyggir aðdáendur fyrir 10+ árum hafi ekki þroskast uppúr þessu !!! Æi ég veit það ekki....ég man þegar þeir hættu þá var sýnt frá því þegar aðdáendurnir grenjuðu svoleiðis úr sér augun og sumar frömdu sjálfsmorð....Ætli þessar sem voru svo "heartbroken" séu bara í skýjunum þá núna ??? Pæling !!!

Voða lítil breyting á þeim.....

Annars þá óska ég bara öllum gleðilega páska :) og njótið þess að háma í ykkur súkkulaði :D

-Íris Thelma-  


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 00:00:02 / Íris TJ

Í tilefni af því að við Ella eigum að vera að læra.....

Eitt sinn ákváðu Jói og Siggi að fara á skíði saman. Þeir lögðu af stað frá
heimili Jóa á litla sendiferðabílnum hans og héldu norður í land.
Eftir að hafa keyrt í nokkra tíma gerði alveg heiftarlegan skafrenning og
þeir festu bílinn. Þeir brutust gegnum hríðina heim að bóndabæ sem var rétt hjá og spurðu mjög aðlaðandi konu sem kom til dyra þegar þeir bönkuðu hvort þeir mættu gista.

"Ég veit að það er alveg hræðilegt veður og ég hef nægt húsaskjól, en ég er
nýlega orðin ekkja " útskýrði hún , "og ég er hrædd um að nágrannarnir færu að krunka eitthvað ef ég leyfði ykkur að gista. Og það er ég ekki tilbúin í."

"Ekki hafa áhyggjur, " sagði Jói, "við yrðum mjög ánægðir ef við fengjum að gista í hlöðunni, og ef veðrinu slotar þá förum við strax og kettinum
verður setuljóst.

Kona samþykkti þetta og Jói og Siggi héldu til hlöðunnar og sofnuðu vært.
Um morguninn var veðrið gengið niður og þeir losuðu bílinn og héldu til
skíða. Þetta varð hin besta skíðhelgi.

U.þ.b. 9 mánuðum seinna fékk Jói óvænt bréf í pósti frá lögfræðiskrifstofu.
Það tók Jóa smá stund að átta sig á bréfinu, en sá þó fyrir rest að það var
frá lögfræðingi ekkjunnar aðlaðandi sem þeir höfðu hitt skíðahelgina góðu.

Jói heimsótti vin sinn Sigga og spurði hann: "Siggi, Þú manst eftir fallegu
ekkjunni á bóndabænum sem við gistum á skíðahelgina góðu fyrir norðan." "
Já" sagði Siggi. "Ég man eftir henni."

"Getur verið" hélt Jói áfram "að þú hafir vaknað upp um nóttina og farið
inn í hús og laumast upp í rúm til hennar."
"Já" sagði Siggi vandræðalegur yfir því að Jói væri búinn að komast að öllu
saman, "ég verð að viðurkenna það að ég gerði það."
"Og notaðir þú mitt nafn þegar þú sagðir henni hvað þú hétir?"

Siggi eldroðnaði, "Já, fyrirgefðu vinur, ég gerði það víst. En af hverju
spyrðu?"
"Það er óþarfi að afsaka elsku kallinn minn. Hún var nefnilega að gefa upp
öndina og erfði mig að öllu sínu."


Og þú hélst að þessi saga endaði öðruvísi. Var það ekki?


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 11:59:08 / Íris TJ

Snooze

Garfield E-Comic by Jim Davis

Fyrir ykkur sem finnst gott að "snúza" :) Hvernig væri það ef vekjaraklukkan tæki upp á því líka sjálf...hehehehe

-Íris Thelma-


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 17:26:26 / Edda Plögg

Ég á ekki til eitt einasta....

Fyrst: Íris og Ella, get those fingers krackin' og inn með eins og eina færslu!

 

Næst: Það eru ALLIR ÓLÉTTIR!!! Þetta er að verða að faraldri.

Sara vinkona á nú reyndar einn eins og hálfs árs kút

Dúa vinkona komin á steypinn

Birna vinnuböddí rétt að byrja og komin smá smá á leið

Glæný frænka kom fyrir mánuði

... ok það voru víst ekki fleiri en þetta...

 

en hvenær kemur röðin að mééééér???

(væl)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 20:58:50 / Edda Plögg

Í fréttum er þetta helst:

Viðskipti

 

Edduhótel sett á laggirnar í Danaveldi

hótel edda

Síðastliðinn þriðjudag opnaði nýtt, stórglæsilegt 40 fermetra Edduhótel á einni hæð við Eyrarsundsveg í suðurhluta Kaupmannahafnar. Enn sem komið er hafa gestir verið ánægðir með gistinguna, að sögn hótelstjórans, Eddu Þallar Kentish.

"Við höfum fengið mjög fínar viðtöku - Fyrsti gesturinn var einmitt Hrafnhildur Ævarsdóttir, búsett í Austurríki. Hún var einstaklega ánægð með hljóðkerfið sem við buðum upp á í herberginu hennar, en benti á að við þyrftum að laga hitastillingar þó nokkuð. Því hefur nú verið kippt í liðinn"

 

Næstu næturgestir eru svo ekki af verri endanum:

Lárus klippari, búsettur í Randers, er væntanlegur á næstu mínútum og á bókað fram á mánudag.

Saga Rúnarsdóttir, búsett í Svíþjóð, á bókað gistipláss á laugardagskvöldið kemur.Hún á einnig bókað fram á mánudag.

Jakob Jóhann Sveinsson, sundkappi, búsettur í Breiðholtinu, er væntanlegur á sunnudag og á gistingu fram á þriðjudag.

Hjalti "feiti", búsettur í Reykjavík, er svo væntanlegur á þriðjudaginn. Hann á bókað fram á sunnudaginn 18. febrúar.

 

Þann 19. febrúar mun Hótel Edda í Kaupmannahöfn loka um óákveðinn tíma.



» 1 hafa sagt sína skoðun

21.01.2007 22:48:17 / Edda Plögg

Time flies?

Fannst mánuður á milli skrifa fullgróft ;) Ætla að koma með punktablogg einn tveir og núna:

-Skvass er ógislega skemmtilegt
-Er í sykurbindindi (er að falla stórkostlega akkúrat núna, en einn svindldagur í viku er í lagi!)
-Var að eignast litla frænku (17. jan) sem hlaut nafnið Sigrún Heba Þorkelsdóttir, öllum að óvörum (nema Þorkelsdóttir parturinn)
-Við Bjarni erum í fríi um þessar mundir (vika 2 að byrja)
-Náði fyrstu annar prófinu með glans
-Hópurinn minn kemur til með að halda nýnemafyrirlesturinn fyrir fyrstu önn núna! Stolt og ekkert annað
-Heimsóknarlistinn til Köben þéttskipaður í febrúar. Mars: Fyrstur kemur fyrstur fær!!
-Er pretty much afvelta akkúrat núna (er að safna kröftum fyrir danstímann á miggudaginn með því að borða mikið ;))
 
Jæja, komið að ykkur ;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

25.12.2006 19:03:17 / Edda Plögg

Jólakveðja :)

Jæja elskurnar, ég er hérna að blogga á macintosh tölvunni hans pabba sem hótar mér að þetta bloggkerfi virki ekki hjá sér - við sjáum nú til með það ;) Vildi bara óska ykkur gleðilegra jóla og það var rosalega gaman að hitta ykkur báðar! næst legg ég til að við hittumst allar í EINU :) Love, E-luv ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

23.12.2006 18:42:11 / Ella Pæ

Stutt, létt og laggott....

Er að gera heaví leiðinlegt Mállýsku verkefni... sem er kannski ekkert svo slæmt nema það er endalaust langt og ég nenni ekki að læra á Þorláksmessu...

Þetta fékk mig hinsvegar til að brosa í öllum þessum leiðindum... hvernig er hægt að þekkja enskumælandi þjóðir í sundur :

Americans: Drink weak, pissy-tasting beer.
Canadians: Drink strong, pissy-tasting beer.
Brits: Drink warm, beery-tasting piss.
Aussies: Drink anything with alcohol in it.

Þá vitiði það... og Gleðileg jól í leiðinni :D

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 21:02:46 / Ella Pæ

Kominn tími á færslu? Gæti það verið ;)

Fann þetta á netinu... bara varð... hló alveg endalaust, kannski er þetta lausnin??

Námskeið fyrir karla!
ALLIR VELKOMNIR AÐEINS FYRIR KARLA

Athugasemd: námskeiðin eru flókin þannig að aðeins átta geta sótt hvert námskeið

Hvert námskeið tekur tvo daga og efnið er eftirfarandi:

FYRRI DAGUR:
- HVERNIG Á AÐ FYLLA ÍSMOLAMÓT -
Skref fyrir skref með glærusýningu

- KLÓSETTRÚLLUR - VAXA ÞÆR Á KLÓSETTRÚLLUHALDARANUM? - Hringborðsumræður

- MUNURINN Á RUSLAFÖTUM OG GÓLFI -
Æfingar með körfuefni (teikningar og módel)

- DISKAR OG HNÍFAPÖR: FER ÞETTA SJÁLFKRAFA Í VASKINN EÐA UPPÞVOTTAVÉLINA? -
Pallborðsumræður - nokkrir sérfræðingar

- AÐ TAPA GETUNNI -
Að missa fjarstýringuna til makans - Stuðningshópar

- LÆRA AÐ FINNA HLUTI -
Byrja að leita á réttum stöðum í stað þess að snúa húsinu við gargandi - Opin umræða

SEINNI DAGUR:
- TÓMAR MJÓLKURFERNUR; EIGA ÞÆR AÐ VERA Í ÍSSKÁPNUM EÐA Í RUSLINU? -
Hópvinna og hlutverkaleikir

- HEILSUVAKT; ÞAÐ ER EKKI HÆTTULEGT HEILSUNNI AÐ GEFA HENNI BLÓM -
PowerPoint kynning

- ER ERFÐAFRÆÐILEGA ÓMÖGULEGT AÐ SITJA ÞEGJANDI MEÐAN HÚN LEGGUR BÍL?
Ökuhermir

- AÐ BÚA MEÐ FULLORÐNUM; GRUNDVALLARMUNUR Á ÞVÍ AÐ BÚA MEÐ MÖMMU ÞINNI OG MAKA -
Fyrirlestur og hlutverkaleikir

-HVERNIG Á AÐ FARA MEÐ EIGINKONUNNI Í BÚÐIR -
Slökunaræfingar, hugleiðsla og öndunartækni

- AÐ MUNA MIKILVÆGAR DAGSETNINGAR OG AÐ HRINGJA ÞEGAR ÞÉR SEINKAR -
Komdu með dagatalið þitt í tímann

- AÐ LÆRA AÐ LIFA MEÐ ÞVÍ AÐ HAFA ALLTAF RANGT FYRIR SÉR! -
Einstaklingsráðgjöf og samtöl

- SANNIR KARLMENN SPYRJA TIL VEGAR ÞEGAR ÞEIR VILLAST -
Sönn saga frá manninum sem spurði til vegar

Þetta kalla ég húmor :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 11:11:06 / Edda Plögg

Howdy

Hvernig er það þið þarna sem þurfið bara að fara í eitt próf og eruð í jólafríi frá 16. desember og fram í miðjan janúar.... Á EKKI AÐ BLOGGA? ;)

Ligg hérna í einhverju fjandans kvefi þegar lokaverkefnið í skólanum er á endasprettinum - ekki sátt við heilsuna hérna megin. Enda erum við B. núna búin að plana að borða geggjað hollt og alltaf góðan og hollan kvöldmat og alltaf morgunmat líka því þetta gengur bara ekki - held að ég sé núna í veikindum þrjú eða fjögur á þessari önn!

Er alveg reyklaus... síðast þegar ég fékk kvef og reykti ofan í það og hélt mig ekki í rúminu endaði ég á því að eyða helginni á spítala og það fær sko EKKI AÐ KOMA FYRIR AFTUR - óvermæ dedd boddí skiljú ... þannig að ég er búin að vera í rúminu nánast non stop frá klukkan fjögur í gær (fór í skólann sko) og tygg bara tyggjó þegar mig langar í sígó. Skothelt plan. vil helst vera hress þegar við komum heim.. ! (Íris ég hringi í þig bráðum útaf jú nó vott ;))

Búin að kaupa tvær heilar jólagjafir, og á núna bara fimm eftir og ég er bara ekki alveg að meika að kaupa þær! Hvað á maður til dæmis að gefa foreldrum sínum sem eiga allt??

Jæja, heyri í ykkur stelpur :)
Eddz

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 21:47:59 / Edda Plögg

Borat...

Var að koma úr bíó í Fisketorvet... fór á Borat. Eitt orð (eða mörg): ómægodþettavarsvofyndiðensvorangtásvomarganháttogloksinsfengukanarnirþaðsemþeireigaskilið!!!!

Senst fyndið.

En það sem mér finnst fyndnast er hversu ótrúlegan hæfileika þessi myndarlegi maður, Sacha Baron Cohen, hefur til að breyta sér í ómyndarleg furðudýr eða bara furðudýr. Við sjáum mynd:




Svona er mr. Cohen í engu gervi. Ekkert hægt að deila um það að hann er alveg ágætur lúkker kaddlinn.



Borat. Myndir segja meira en fjööööölmörg orð.



Ali G the infamous  (hvað er það á íslensku aftur? Infamous. Man það ekki. Er með orðið í kollinum samt. Komment óskast.) Ef þetta var ekki sprengja á senu skemmtikrafta þá veit ég ekki hvað. Hinn ósvífni, fullkomlega siðblindi Ali G sem gat af sér Borat. Endalaust gamanaðissu.

Eruð þið búnar að sjá Borat skvísur?? what's the verdict?

EddaK
-í hláturskasti

» 4 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 23:35:31 / Íris TJ

TV people

Ok er að horfa á þáttinn Pepper Dennis á Sirkus, og það er alveg ótrúlegt hvað sjónvarpsfólk heldur sig í sama mynstrinu, það bara kemst ekki úr þessum "vítahring" það er að segja, það kemst sjaldnast inní kvikmyndabisnessinn.....Fer úr einum sjónvarpsþættinum í annan ! Var að horfa á Love, inc um daginn og þar voru 4 sem ég hafði séð í öðrum þáttum fyrir einhverjum árum síðan !! Ætli þetta lið vilji fara sömu braut og frægustu leikarar hollywood ???? Eða ætli þau séu bara sátt við að vera föst í sama hlutverkinu - ok kannski ekki alveg sama hlutverkinu en þú veist hvað ég meina ;)

Varð bara að koma þessu frá mér :)

-Íris TJ-


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 13:48:11 / Íris TJ

jamms og jæja

Hvað er málið með tregt fólk ?????? Shit, var að vinna í gær sem er ekki svo frásögufærandi nema það að fólk var bara svo tregt....ok kannski ekki allir en margir og vorum við Aldís orðnar svona nett pirraðar.....sérstaklega á einni.....útlendingur sem talar íslensku og já ok ég skal gefa henni það að hún á aðeins erfiðara með að skilja á íslensku !!! En kommon...það var ekki málið, ég var að útskýra fyrir henni mjög einfaldan hlut og það tók alveg 20 mín eða eitthvað !! Mín alveg farin að missa þolinmæðina að endurtaka það sama aftur og aftur....var farin að tala hægar og hærra - einhver ósjálfráð viðbrögð - anyways, hún hættir við og ætlar að hugsa málið....svo kemur hún aftur eftir svona 10 mín og fær þá afgreiðslu hjá Aldísi sem þarf að endurtaka allt það sama og ég sagði henni og það einmitt alveg í einhvern hálftíma....Spes dagur :)

Fór í afmæli til Gulla síðasta laugardag og vá hvað það var gaman, myndir koma inn vonandi bráðlega þar sem að iris.safn.net liggur eitthvað niðri ásamt bloggar.is !! Maður verður bara að bíða þolinmóður, þó svo að þolinmæðin rann út í gær 8|
Anyways, við Viktoría og Biggi fórum saman, en hann ætlaði ekki að fara með, var náttúrulega á fullu að læra fyrir próf ! En ég náði að draga hann og hann ætlaði ekki einu sinni að drekka.....hvað gerist.....ég þurfti að DRAGA kallinn heim því hann var að skemmta sér svo vel og var auðvitað orðinn svona nett í glasi ;) Gaman að því, en vá hvað var mikið að fólki (aðallega stelpum) sem ég hafði bara aldrei séð áður......
En samt gaman að þessu......alveg til í svona partý aftur....og þurfa ekkert að flýta mér heim......en skemmtilegustu partýin eru þau sem eru alla nóttina og fólk ekkert að fara niður í bæ !!

Stelpuhittingur í kvöld hjá Guðrúnu, það verður næs :) hlakka til !

Systir mín alveg við það að eiga, fór til hennar í fyrrakvöld og vá hún er sko tilbúin, litla beibíið er ekki bara búin að skorða sig, nei hún er bara komin á bólakaf, svo ég býst við hringingu any minute now :D get ekki beðið eftir að sjá litlu snúlluna !!

Jæja, ætla að halda áfram að lesa The Two Towers. Þarf að einbeita mér vel að honum Aragorn þar sem ég er að fara að skrifa ritgerð um hann - ekki slæmt.....

Adios
-Íris Thelma-

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.11.2006 13:55:00 / Edda Plögg

Beach bar madness!

Við Bjarni kíktum aðeins út á lífið í gær ásamt gestunum okkar. Það er svoesem ekkert óvanalegt að maður sýni gestum næturlífið hérna í Köben, en okkur fannst gærkvöldið sérstaklega vel heppnað ;)

Um miðnættið hittum við Ellu pæ á Beach Bar niðri í bæ, sem er svona kokteilbar með sandi á gólfinu og tropical hitastigi og að SJÁLFSÖGÐU viðeigandi tónlist eins og George Michael og svona fínerí.

Allavega, ég er ekki búin að vera inni á staðnum í fimm mínútur þegar ég er klipin í rassinn. Hélt nú að þetta væri bara hann Bjarni að sprella eitthvað því hann er svo agaglega hrifinn af afturendanum á mér, en því var nú öðru nær. Ég sneri mér við og sé þar stelpu sem getur ekki hafa verið mikið eldri en fimmtán, alveg á hvínandi kúpunni, að dansa ... eh.. fyrir mig býst ég við, á þann hátt sem hún hefur sennilega haldið að væri afar tælandi. Ég var fljót að setjast í fangið á Bjarna til þess að hún myndi ekki reyna neitt meira..... Frekar furðuleg uppákoma.

Svo fáum við okkur kokteila - og AUÐVITAÐ fékk ég mér Sex on the Beach, og við erum bara svona eitthvað að spjalla eins og manna er siður. Og hvað byrjar þá ekki á fóninum?? JÓLALAG. Já, All I Want For Christmas Is You lagið þarna sem þú heyrðir sennilega síðast í Love:Acctually hljómaði þarna á make-believe strandbarnum með hitabeltislofslaginu og rassaklípandi smástelpum. Við Ella sprungum úr hlátri nokkuð endanlega á þessum tímapunkti.

Svo ætlaði gamli barþjónninn hann Bjarni að vera rosalega sniðugur og sýna okkur trikk sem hann kunni (sem ég lærði þegar ég var fimm, en látum það liggja á milli hluta... ). Hann sem sagt tók fyrir endann á rörunum ofan í kokteilnum mínum og lyfti þeim upp og ætlaði að hella úr rörunum upp í mig. Ekki vildi betur til en svo að allur hjelvítis djúsinn fór FRAMAN Í MIG og ég hugsa að ég hafi litið út eins og léleg Alice Cooper eftirherma þarna á tímabili með rennandi vodka blandaðan saman við maskara framan í mér. Hlóg nú að þessu eftir á, en hefndi mín með því að láta Bjarna ganga með Hawaiiskan blómakrans það sem eftir var kvöldsins.. og jú ég skvetti aðeins á buxurnar hans líka.

Svo var komið að því að labba í metró og við alveg í góðu stuði eftir þetta litla magn áfengis sem við höfðum innbyrgt. Bjarna leið hálf kjánalega með blómakransinn þannig að það varð úr að við vorum bæði í EINU með blómakransinn utan um hálsinn og við tók ein skrautlegasta, flippaðasta og skemmtilegasta heimferð sem ég hef upplifað. Áfram Hawaiiblómakransar!

Núna er Bjarni farinn út með Óttari og Jónu Dóru og ég er að bíða eftir að Ella pæ fari niður í miðbæ svo við getum hist eitthvað og sprellað áður en hún flýgur til baka til Íslands á morgun! Það var geggjað gaman að hafa þig skvís!!

Off
EddaK
Með vodka í auganu.

ps. Djöfull fer þetta minnsirkus fyrirbæri í taugarnar á mér... ekkert nema einhverjar hálfberar gellur sem sitja um kærastann minn í stafrænum heimi... jahérna.

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Næturlífið...